Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Himneskt hásæti Jehóva

Himneskt hásæti Jehóva

Söngur 219

Himneskt hásæti Jehóva

(Opinberunarbókin 4)

1. Jehóva Guð, þú alvaldur ert,

ógnþrungið þitt mikla vald er þakkar vert.

Regnbogi smaragðs fagurgrænn fer,

friðartákn sem hæfir þér, farsæld hann ber.

2. Tuttugu’ og fjórir klæddir í hvítt,

konungar og prestar Guðs kunngera blítt.

Og fjórar verur lofa Guðs ljós,

líkn hans, réttinn, visku’ og mátt, lofgjörð og hrós.

3. Þú sendir elding, þrumur frá þér,

þín raust mælir sannleikann, þýðast hann ber.

Glerhafið táknar Guðs hreina mátt,

gegnum orð þitt verðum hrein, Guð veittu sátt.

4. Himnesk er sýnin helgum þig nú,

heiðrum alheimsvaldið þitt, hlýðin og trú.

Kristur sem lífsins konungur er,

kynnti Drottins lausnargjald, kennum það hér.