Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Horfið á sigurlaunin!

Horfið á sigurlaunin!

Söngur 222

Horfið á sigurlaunin!

(2. Korintubréf 4:18)

1. Er augu blindra aftur sjá

og eyru daufra heyrn svo fá,

er eyðimörkin aldin ber

og eftir sandauðn lækur fer,

úr helju ástvin heimtum við,

sér haltur léttir eins og kið,

sú hamingja þér hlotnast má

ef horfir þau sigur laun á.

2. Er mállaus aftur mæla fær

og mönnum hverfur elliblær,

er gjöful jörðin gróður ber

og gæðin aldrei þrjóta hér,

er barna söngvar lífga lag

og loftið fyllist gleðibrag

þá sérðu látna lífið fá

ef laun Drottins horfir þú á.

3. Er kið og úlfur kjósa frið

og kálf hjá birnu sjáið þið,

þau lítill drengur leiðir öll

og ljúfu barnsins heyrast köll,

er tár á augum aldrei sjást

og enginn mun þar framar þjást,

þann dýrðarheim þeir hollu sjá

sem horfa Guðs sigur laun á.