Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Jehóva, þú mikli Guð!

Jehóva, þú mikli Guð!

Söngur 49

Jehóva, þú mikli Guð!

(Sálmur 95:3)

1. Jehóva mikli, eilífi, æðsti,

ávallt lofgjörð hæfir þér, auðmjúk fetum veg þinn hér.

Dómari, faðir, fræðari, kóngur,

fyrir þér, Guð, ábyrgur er maður hver.

Ó, Guð, þú ert góður, já, góður ert þú,

nú gef að við þjónum í sannri trú.

Við helgum nafn þitt, Guð, og heiðrum þig djörf,

af hollustu þjónum hvar sem gerist þörf.

Uppspretta lífsins, algóði herra,

allt gott kemur frá þér, Guð.

2. Jehóva mikli, heilagi herra,

hámark gleði finnum hér, heilshugar ef þjónum þér.

Háborgin hæsta, uppspretta orku,

allt sem býr í hugum manna Drottinn sér.

Já, Guð sýnir kærleik og stöðugan styrk,

við stefnunni höldum, hjálp þín er virk.

Þinn málstað við metum og treystum á þig,

ó, megum við þjóna á réttlætis stig.

Eilífi skjöldur, okkur þú hjálpar,

ávallt treystum á þig, Guð.

3. Jehóva mikli, hirðir á himni,

hugar vel að þinni hjörð, heldur þar um góðan vörð.

Frelsari ert þú, eilífur klettur,

áköll heyrir þú frá mönnum hér á jörð.

Ó, Guð, þú ert góður og næm er þín náð,

við nálgumst þig faðir, þiggjum þín ráð.

Nafn þitt höldum heilagt, við þráum að sjá

er þú öllum áformum þínum munt ná.

Jehóva herra, heilagi faðir,

hælið eina ert þú, Guð.