Jehóva, „Guð allrar huggunar“
Söngur 58
Jehóva, „Guð allrar huggunar“
1. Huggun Drottins eigum hlutdeild í,
hughreysting ást hans gefur.
Huggum með hans orði aðra menn,
umsjón þar Kristur hefur.
2. Oft við saman þjáumst þrautum í,
þjóna Guðs heimur spottar.
Dregur Guð úr sárum sviðanum,
sér að við erum vottar.
3. Hyllum Guð sem huggar okkur best,
hughraust því ávallt verum.
Drottinn okkur sanna fæðu fær
fús ef hans vilja gerum.
4. Veitir hann í raunum ró og frið,
ráða til hans þú leitir.
Sannleik okkur Kristur kenndi þann,
kærleikur Guðs hjálp veitir.