Jehóva, Guð hjálpræðisins
Söngur 153
Jehóva, Guð hjálpræðisins
1. Jehóva hæstum himnum frá,
hefur séð aumur mönnum á.
Við erum getin villu í,
vantar öll sannleik hreinan því.
Ljáðu nú, Drottinn, líknarhönd,
lyktu um okkur kærleiksbönd.
Hyllina þína þráum við,
þökkum þér hjálpráð þitt og frið.
Þökkum þér hjálpráð þitt og frið.
2. Kærleikans byrgi komin í,
Kristur hann forðum spáði því.
Víða á jörðu veitir þú
vegvilltum hjálp, já, miklum múg.
Hógværum frið þú hefur veitt,
hjálpræðið götu þeirra greitt.
Vitrir menn óttast vilja þig,
veitir þeim hjálp á lífsins stig.
Veitir þeim hjálp á lífsins stig.
3. Miskunn og elska mætast þín,
margir nú fagna þeirri sýn.
Máttarverk hafa mikil sést,
Messías brátt í leikinn skerst.
Á jörðu tryggð og trúin vex,
tendrar það lofgjörð þér til vegs.
Hjálpræði Drottinn hefur veitt,
hiklaust það boðum vítt og breitt.
Hiklaust það boðum vítt og breitt.