Jehóva, athvarf okkar
Söngur 135
Jehóva, athvarf okkar
1. Þú, Jah, ert eilíft skjól og athvarf
um aldir þjónum þínum hjá.
Og fyrr en skópstu fjöll og hæðir
stóð fast þitt veldi himnum á.
Þú einn ert Guð um alla eilífð,
um aldur ert hinn sami þú.
Og þó að dufti vér svo verðum
oss vekja mun þín elska trú.
2. Og löngu þúsund árin lítur
sem liðna daginn þann í gær.
En öll vér erum eins og grasið
sem aðeins stuttan tíma grær.
Sjö tugi ára aðeins lifum
ef áttatíu vel það fer.
Þau ár þó færa mönnum mæðu
og miklar sorgir líka hér.
3. Kenn oss að telja daga’ og tíma,
vér tökum gleði vora þá.
Vér viljum öðlast viturt hjarta,
þá vegsemd mikla muntu fá.
Ó, Jehóva, þín hátign hjálpi
að hugann örvi sannleiks þrá.
Er boðun staðfestir þú brýna
og blessar starfið jörðu á.