Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Jehóva ber umhyggju fyrir okkur

Jehóva ber umhyggju fyrir okkur

Söngur 44

Jehóva ber umhyggju fyrir okkur

(1. Pétursbréf 5:7)

1. Guðs elska yljar um hjörtun,

hún uppörvun veitir og kjark.

Já, hárin sjálfur Guð hefur talið,

hughraust við náum í mark.

2. Þótt oft hér andstöðu mæti,

þá aldrei við töpum samt móð.

Guð sér ef til jarðar smáfugl hnígur,

sýna mun ást sinni þjóð.

3. Guðs þjónar þjáningum mæta

og þrengingum víða um heim.

Með þeim Guð Jehóva þjálfar trúa,

þroska þeir öðlast í þeim.

4. Guðs elska öryggi veitir,

hans umhyggja stöðugt er tryggð.

Ef vinnum áfram í verki þolin,

von mun á bjarginu byggð.