Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Jehóva er hæli okkar

Jehóva er hæli okkar

Söngur 85

Jehóva er hæli okkar

(Sálmur 91:1, 2)

1. Jah, hann er okkar hæli

og háborg alla tíð.

Í skugga hans er skýli

og skjól um ár og síð.

Úr freisting okkur forðar hann

og frelsar sérhvern trúan mann.

Já, Guð er voldugt vígi

og vernda mun hann sinn lýð.

2. Og þó að þúsund falli

við þína hlið, ei fjær,

tíþúsund þér til hægri,

til þín það ekki nær.

Að óttast hættur óþarft er,

þær ógna ekki Drottins her.

Á hættur aðeins horfir

en hjálp frá Jehóva fær.

3. Þig angrar engin plága

né illska á þér hrín.

Frá Guði englar góðir

vel gæta munu þín.

Þig ljónagin ei fælir frá,

þú fótum treður nöðrur þá.

Við steini fót ei steytir,

þín sterka tryggð aldrei dvín.

4. Jah þökkum vissu þá sem

hann þráfalt hefur veitt.

Er Guðs verk kunnug gerum

skal grandvarlega breytt.

Af allri sálu iðkum tryggð

því á Guðs hjálp er frelsun byggð.

Jah, hann er okkar hæli

og háborg er nafn hans eitt.