Jehóva, skapari okkar
Söngur 154
Jehóva, skapari okkar
1. Er Jehóva svo haglega jörðina bjó,
á jarðneskum bústað af öllu var nóg,
þá fagnaðaróp dásamlegt frá englum braust,
um fagurt verk Drottins þeir sungu við raust.
2. En paradís mun endurheimt jörðinni á,
hinn almáttki Jehóva lét þau orð skrá.
Með fyrstu synd var misnotað frjálst mannsins val,
við fögnum að uppreisn til lykta leidd skal.
3. Og vandamál í heiminum hverfa burt þá,
nú hamingjustundar við bíðum með þrá.
Af dugnaði við fréttum þeim dreifum nú hér
því dagsljós í myrkri sá sannleikur er.
4. Guð verðskuldar einn tryggðir, við treystum á hann,
sem trúfastur gjafari hann verndar mann.
Hans sköpunarverk vitna um skynsemi hans,
við skulum því lofsyngja dýrð skaparans.