Jehóva, styrkur og stuðningur minn
Söngur 47
Jehóva, styrkur og stuðningur minn
1. Jehóva, styrkur og stuðningur minn,
stöðug er uppörvun kærleikur þinn.
Sem vottar þínir orð þitt boðum hér,
þótt margir neiti samt að hlýða þér.
(Viðlag)
2. Kristur hann gefur sinn fögnuð og frið,
fyrr var allt myrkur en nú sjáum við.
Skrifuð í orðið þitt skýr og góð boð,
skapar hjá mönnum í baráttu stoð.
(Viðlag)
3. Glaðir við þér ávallt þjónum við hlið,
er Satan reiðist á þig treystum við.
Þótt dauða hóti þá, hjálp veitir þú,
heilum og ráðvöndum standa í trú.
(VIÐLAG)
Þú, Jehóva, styrkur stuðningur ert,
stöðugt við kynnum nafnið þitt sterkt.
Voldugi Jehóva, valdið átt þú,
vígi því ert þú og hjálpræði nú.