Kunngerum sannleikann um ríkið
Söngur 192
Kunngerum sannleikann um ríkið
1. Hér áður fyrr ei vissum við
af vegi ljóss og kristnum sið.
Guð ljósið sitt þá sendi skært,
hans sannleiks orð var okkur fært.
2. Þá miklu þóknun veittir þú
að þjóna Guðveldinu trú.
Er Drottins frægð við flytjum vítt
hans fagra nafn við getum prýtt.
3. Nú glæðum stöðugt starfsins þrá
og stefnum hús og götur á.
Og mönnum þjónum þolinmóð
sem þiggja nám á frelsisslóð.
4. Af afli verki leggjum lið,
um lönd við boðum trú og frið.
Og öll sem einn við stöndum sterk
uns starfsins lok Guð boðar merk.