Kynnumst Guði
Söngur 198
Kynnumst Guði
1. Við þekkjum nú vel vænt Drottins þel
sem gefur frið.
Fús fékk okkur ráð frelsun og náð,
hans erum við.
2. Hann miskunna má, mátt elsku á,
ann mér og þér.
Mjög metum Guðs frið, mold erum við,
hann góður er.
3. Margt ólært þó er um Drottin hér
og sanna trú.
Við viljum hvern dag vel sinna hag
Guðsríkis nú.
4. Ljós lausnarans slóð lýsi Guðs þjóð,
af öllum ber.
Hér nafn Guðs sé hyllt, hans orði’ ei spillt.
Guð sannur er.