Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Lofa þú Jehóva, sála mín

Lofa þú Jehóva, sála mín

Söngur 1

Lofa þú Jehóva, sála mín

(Sálmur 103)

1. Sál mín lofgjörð syngi Drottni,

sætlega óð um nafnið hans hátt.

Fyrirgefning fús hann veitir,

frið sinn og miskunn, líknsemd og mátt.

Þolinmóður, þreytir ei deilur,

þannig treysta Jehóva má.

Allir þeir sem óttast Drottin

elsku og góðvild munu sjá.

2. Eins og faðir agar syni

alltaf hann sér að við erum mold,

og sem blóm á engi visnar,

óðara tærist mannanna hold.

Jehóva Guð elskar og umber

alla er hans rödd eyru ljá.

Ef hans lögmál öll við höldum,

okkur hann líf mun eilíft fá.

3. Hásæti á himni stendur,

heilagur fer með öll yfirráð.

Yfir drottnar öllum heimi,

ástúð hans skynjum, visku og náð.

Lofið Drottin ljóssins þið englar,

leikið honum æ fegurst ljóð,

syngið Guði sveitir herja,

sála mín kveð þú lofsöngs óð.