Lofið Jah Guð með mér!
Söngur 165
Lofið Jah Guð með mér!
1. Heiðrum Jah Guð, hann Drottinn er,
honum öll sköpunin lofsyngur hér.
Látlaust hvern dag lofum hann þá,
ljúflynd við segjum hans alvaldi frá.
Ljúflynd þá segjum hans alvaldi frá.
2. Lofum Jah Guðs mildi og mátt,
mjög seinn til reiði menn tekur í sátt.
Skapari manns undravald á,
ánægð við greinum hans stórvirkjum frá.
Ánægð þá greinum hans stórvirkjum frá.
3. Heiðrum Jah Guð, hann veitir lausn,
hjálp þeim sem leitar, hann gefur af rausn.
Líkn fær þeim því, lánið er valt,
lofi því gæsku hans mannkynið allt.
Lofi þá gæsku hans mannkynið allt.
4. Lofum Jah Guð, lýðum er nær,
langlyndur áköll um hjálp eyra ljær.
Eyða mun hann illvirkjum greitt,
alla þó verndar sem elska hann heitt.
Alla þá verndar sem elska hann heitt.