Lofið Jehóva Guð!
Söngur 100
Lofið Jehóva Guð!
1. Lofið Guð! Lofið Jehóva!
Kunnan gerið Guð! Kynnið hann!
Gleðióp, gjalli þakkargjörð,
Guði heyrir allt á himni’ og jörð.
Öll verkin hans þau vitna skýrt
um mikla visku og kærleiks mátt
og ríkur er hann réttlæti af,
seinn til reiði og býður sátt.
Lofið Guð! Lofið Jehóva!
Kunnan gerið Guð, syngið lof.
2. Lofið Guð! Lofið Jehóva!
Boðið gæsku hans! Kynnið hann!
Hrópið hátt út til sérhvers manns.
Lát allt hold nú heyra’ af gæsku hans.
Þótt sterkur hann sé stríðshetjan, Guð,
hann samt stendur við mildra hlið
og verndar menn er virða hans boð,
þá sem velja Guðs sanna frið.
Lofið Guð! Lofið Jehóva!
Kunnan gerið Guð, syngið lof.
3. Lofið Guð! Lofið Jehóva!
Kynnið ríki hans! Kynnið það!
Boðið hátt! Syngið þakkargjörð
út til ystu endimarka’ á jörð.
Því konungsvald í Krists höndum er,
þakkir kunnum við Guði nú
og syngjum Guði sigurljóð glöð,
honum sýnum við holla trú.
Lofið Guð! Lofið Jehóva!
Kynnið ríki hans, kynnið það.