Lofsyngjum Jehóva hugdjörf!
Söngur 107
Lofsyngjum Jehóva hugdjörf!
1. Guði lof við syngjum hugdjörf saman,
hann með sanni veitir okkur lið.
Við því aldrei andstæðinga skelfumst,
hræðumst ei en sækjum fram á við.
(Viðlag)
2. Guði lof við syngjum hugdjörf saman,
mönnum sýnum dóma Guðs og mátt.
Vondum mönnum okkar kóngur
eyðir og sinn endi Babýlon fær brátt.
(Viðlag)
3. Guði lof við syngjum hugdjörf saman,
fræðum sérhvert auðmjúkt hjarta manns.
Heiður hljóta þeir sem Guði þjóna,
hjálpum þeim að gera vilja hans.
(VIÐLAG)
Góðan boðskap færum fólki hugdjörf,
segjum frá að vígslan sé því brýn þörf.
Syngjum hugdjörf himnaföður lofsöng,
þannig háleitt tignum nafnið hans.