Metið þá hluti rétt sem máli skipta
Söngur 210
Metið þá hluti rétt sem máli skipta
1. Með gleði þjónum Guði Jah sem
okkar kærleik á,
því ekkert skiptir máli sem
Guðs elska himni frá.
Aukum því enn kærleikans bál og megum hvert mál
við sannleiksljós meta nú rétt,
verum því ámælislaus og
vökul svo verk Guðs vinnum létt.
2. Að vera þakklát skiptir miklu
máli Guði hjá
og minnast ráðvönd boða hans
af innstu hjartans þrá.
Og meðal fólks ástunda frið er leggjum því lið
með Guðsríkis frétt um öll lönd,
gerum gott, engan mann hneykslum,
réttum þeim heldur hjálparhönd.
3. Með góðum verkum kenning prýðum,
eflist eining þá
og öðrum skulum sýna virðing,
lög Guðs aldrei smá,
Auðugir að réttlæti nú, við útbreiðum trú
og viljum Guðs upphafning sjá,
þannig metum við það mest sem
Jehóva mætur hefur á.