Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Miklum Guð, konung okkar

Miklum Guð, konung okkar

Söngur 148

Miklum Guð, konung okkar

(Sálmur 145:1)

1. Nú syngjum við Jehóva söng

og sæl miklum hann dægrin löng.

Er kunngerum nafn hans og náð,

að nálgast hann höfum við þráð.

Og fús réttir hann okkur hönd,

já, hjálp út um öll jarðarlönd.

Við tilbiðjum Jehóva trú

og treystum á gæsku hans nú.

2. Er sýnum við tryggð Guð það sér.

Við segjum hvern dag: „Lof sé þér.“

Því okkar Guð réttlæti ann

og eilíft lof verðskuldar hann.

Þeim gefur, sem elska hann, gaum

svo gangan ei verði þeim aum.

Í vandanum veitir hann ráð,

já, við erum Jehóva háð.

3. Nú ríki Guðs rís bráðum hér

þá réttlætið með sigur fer.

Og stöðugt við boðum Guðs stjórn

sem stundum glöð varanna fórn.

Nú Jehóva hefur sett hátt

þann herradóm er sýnir mátt.

Hann illvirkjum eyðir nú senn

og englar því fagna og menn.