Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Orð Jehóva eru sönn

Orð Jehóva eru sönn

Söngur 108

Orð Jehóva eru sönn

(Jósúa 23:14)

1. Rétt eins og regnið gæði sín gefur,

gróður á jörðu það lífgað fær.

Svo er um orðin sem Drottinn talar,

sérhvert orð Jehóva tilgangi nær.

2. Jósúa sagði sinni þjóð frá því,

sýndi Guðs mildi á ljósan hátt.

Jehóva öll sín orð hefur haldið,

allt hefur staðist, það sannar hans mátt.

3. Erfingjum loforðs einatt Guð sagði:

„Allt sem ég heiti það stend ég við.

Örugg er vonin, akkeri líkust.

Ég sver við sjálfan mig og veiti lið.“

4. Við getum haldið vissu og trausti,

veldi Guðs réttlátt mun sigur fá.

Jehóva heiðrum heimi í nýjum,

hollustu hans munum við alltaf dá.