Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Sækjum fram!

Sækjum fram!

Söngur 123

Sækjum fram!

(Hebreabréfið 6:1)

1. Sækjum fram, Drottins þjónar, og þroskumst þá,

hann vill það, okkar Guð, svo við hæfni munum ná.

Sýnum kapp, bæta þjónustu þarfa má,

Jehóva þá sitt veitir lið.

Á Drottins akri er okkar brýn þörf,

Guðs sonur annaðist forðum þau störf.

Lítum til Guðs um styrk, ávallt stöndum djörf,

hans vegu staðföst verjum við.

2. Sækjum fram, boðum óttalaus ég og þú,

boðskap eilífan mannkynið þarf að heyra nú.

Lofi Jehóva Guð okkar góða trú,

er kynnum gleðiboðskap hans.

Þótt gegn þér óvinir uppveki styr,

þú skýst ei undan en þjónar sem fyrr.

Þeim sem Guðsríki boða Guð býður byr.

Guðs sannleik berum til hvers manns.

3. Sækjum fram, allir nú, sýnum framför hér,

starfi fylgjum við eftir því verkið mikið er.

Láttu anda Guðs uppörvun gefa þér,

hans góða ávöxt, uppskerð þú.

Er bræðrum sýnum við sannkristna lund,

á bæn og samkomusókn leggjum stund,

bjóðum ástríka aðstoð og hjálpar mund

svo skíni okkar ljós og trú.