Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur til Jehóva

Söngur til Jehóva

Söngur 190

Söngur til Jehóva

(Sálmur 92:2, 3)

1. Við syngjum glaðir söng í dag

og sendum Guði þakkarbrag,

hans leiðsögn eflir okkar hag,

Guð einn fær þetta hrós.

Því miðlað gæsku hefur hann,

við höfum tengsl við skaparann.

Hann gefur frið er frelsar mann

og fagurt sannleiksljós.

2. Guðs leiðsögn þjónn hans lofi hver

sem ljós í náttmyrkrinu er,

hún skín í heimi skærust hér,

hans sköpun huggun fær.

Frá Jehóva er vonin veitt

og vafasömum skugga eytt.

Úr dagsins vanda getum greitt

svo gleði veitist skær.

3. Við virðum þann sem vald á mest

og veitum honum lofið best,

í Jesú nafni nefnum flest

sem náð Guðs getur veitt.

Guð, þiggðu núna þakkargjörð

frá þínum vottum hér á jörð.

Að lífsins vatni leiddu hjörð

sem lofar nafn þitt eitt.