Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Súlamít-leifarnar

Súlamít-leifarnar

Söngur 11

Súlamít-leifarnar

(Ljóðaljóðin 6:13)

1. „Mín Súlamít eina og ástkæra mær,

þín andlega dyggð er svo sjaldgæf og skær,

þitt tal er mér yndi og tær fegurð þín,

og til þín mig dregur, þú Súlamít mín.“

2. Svo mælir sá hirðir sem herra þinn er,

því hann deila vill sínum launum með þér.

Hvert verður svar hennar sem hugdjörf æ stóð,

mun hún svara Kristi sem fyrirmynd góð?

3. Þín einstaka trúfesti aldrei mun seld,

því elskunnar funa má líkja við eld.

Sönn elska, sem Helja hún ósigruð fer,

þín ást er sem logi Guðs Jehóva mér.

4. Þið Súlamít-leifar, ó, sýnið nú tryggð,

þá sannið þið brúðguma elsku og dyggð.

En fylgdarlið meyja sem er ykkur hjá,

það fagnar þeim launum sem þið munuð fá.