Sjáið hersveit Jehóva!
Söngur 166
Sjáið hersveit Jehóva!
(Jóel 2:7)
1. Hér er Drottins hersveit,
heiðni skilin frá.
Kynnir konungsríkið,
Kristur nú það á.
Fram þeir fúsir sækja
fórnarhuga með,
ekkert vekur ótta
eða hreyfir geð.
Allt traust einum Guði
og hans syni ber.
Glaðir geta boðað:
„Guðsríki er hér.“
2. Sjá, Guðs sönnu þjóna,
sauða leita nú.
Babel fjötrar fjöldann
fast í villutrú.
Ber þeim nú að bjarga,
bjóða hjálp þeim skal,
hvetja þá að koma’ í
kristinn ríkissal.
Sauði sem þeir leysa,
sífellt fræða meir.
Andans orðin sönnu
áfram boða þeir.
3. Sjá, hér múginn mikla,
Messíasar lið,
ásamt litlum leifum
lofa Drottins grið.
Höggormsslægð þeir hafa,
hugur falslaus nú
og í þungri ofsókn
ætíð sýna trú.
Gagn er þeim og gleði
Guð að heiðra sinn.
Ávallt með Guðs anda
auka fögnuðinn.