Tölum hið hreina tungumál
Söngur 78
Tölum hið hreina tungumál
1. Við tölum orð sannleiks sem tengt hafa menn,
þá tungu sem hrein er og skýr.
Þau hrífandi orð eru hjartanu hvöt,
sú hressing er Guðs þjóna knýr.
2. En Jehóva mönnunum mál þetta gaf,
þeim mildu er eiga hans stoð.
Þeir fræða hér aðra og feta hans veg
og flytja hans tungu og boð.
3. Þeir segja þá skilið við siðlausan heim
er sannleikans tunga er lærð.
Þeir hlýða Guðs orði og hylla hans veg
og hafna því veraldar flærð.
4. Við þakklátir Jehóva þjónum sem einn
og þráum hans leiðsögn af sál.
Af eldmóði tölum það tungumál hreint,
sú tunga er skapara mál.