Takið afstöðu með Jehóva!
Söngur 143
Takið afstöðu með Jehóva!
1. Fyrr var í hjörtunum fullvissa smá,
falstrúarkenningum brögðuðum á.
Hjörtun því glöddust við gleðifrétt þá,
Guðsríki heyrðum við um (heyrðum um).
(Viðlag)
2. Drottni af hjarta og dyggð þjónum trú,
dreifum hans sannleik með fjölmennum múg.
Víðfrægjum, bræður, hans veglyndi nú,
virðum hans heilaga nafn (heilagt nafn).
(Viðlag)
3. Árásir Satans við óttumst ei hér,
alvaldur Jehóva með okkur er.
Fámennur gegn mörgum gengur hans her,
Guð veitir styrk sinn og mátt (styrk og mátt).
(VIÐLAG)
Fús Jehóva fylgdu
fagna yfir því.
Hann getur ei gleymt þér,
gakk ljósi hans í.
Flyt boðskap um frelsi,
frið jörðinni á.
Vald Guð Kristi veitti,
vöxt mikinn má sjá.