Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Tilbiðjið Jehóva á unglingsárunum

Tilbiðjið Jehóva á unglingsárunum

Söngur 157

Tilbiðjið Jehóva á unglingsárunum

(Prédikarinn 12:1)

1. Úr munni barna Guð bjó lofsöng sér,

boðuðu konungdóm Jesú Krists hér.

Já, lítið ungbarn sem orð mæla kann,

einlægt með foreldrum vegsamar hann.

2. Foreldrar allir sem anda Guðs þrá,

eiga hjá börnunum hlýðni að sjá.

Vald til að kenna þeim veitti Guðs náð,

verið þeim auðsveip og þiggið hans ráð.

3. Já, kristin æska, gæt þíns vegar þú,

þiggðu hjálp Guðs, treyst á Jehóva nú.

Leita sér vinsælda valt er og illt,

vinirnir slæmir þér fljótt geta spillt.

4. Skaparann æskuár þín mundu því,

þjónaðu anda og sannleika í.

Seinna með árunum fögnuð þú færð,

föður þinn Jehóva gleðja þú nærð.