Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Tileinkaðu þér sannleikann

Tileinkaðu þér sannleikann

Söngur 191

Tileinkaðu þér sannleikann

(2. Korintubréf 4:2)

1. Vel sannleikans leið, besta lífsveginn kæra,

hann leiðir Guðs blessunar til.

Með gleði þá bauð Jesús gjafir að færa

því gjafirnar útbreiða yl.

Sannleik eigna þér,

mönnum sönn trú augljós er,

vitni ber þitt líf og breytni að

sannleik bjartan þú tileinkar þér.

2. Sé Jehóva fremst og þú elskir hann ætíð,

þú aðfinnslu heimsins munt fá.

Menn undrast þitt val og þeir ofsækja Guðs lýð

því án trúar ljós Guðs ei sjá.

Sannleik eigna þér,

heimi synda hafna ber.

Fær þig Drottni nær og dýrka hann,

sannleik dýrmætan tileinka þér.

3. Og djöfullinn mun sínum blekkingum beita,

við berjumst gegn vélráðum hans.

Með trúna sem skjöld hægt er viðnám að veita

og verjast og fá lífsins krans.

Sannleik eigna þér,

þig gegn Satans klækjum ver.

Klæðstu vopnum sem Guð veitir nú,

sannleik vitur svo tileinka þér.

4. En holdið er veikt, svikult hjartað mann tælir,

í heimi við syndir þú berst.

En Guð er með þér, orð hans marg oft það mælir,

þú megnar að sigra’ ef þú verst.

Sannleik eigna þér,

svikul snara holdið er.

Á leið þinni sjálfstjórn sýndu þá,

þannig sannleikann tileinkar þér.