Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Trúfastir tigna Jehóva

Trúfastir tigna Jehóva

Söngur 136

Trúfastir tigna Jehóva

(Sálmur 18:26)

1. Trúfastir tigna þig, tilknúna finna sig.

Vilt þú þeim veita stig velgengni nú?

Vegsemd þér verðug ber, vegur þinn réttvís er,

iðkum verk einlæg hér, ávallt þér trú.

2. Þú heiður þennan átt, þökkum þér stórt og smátt,

aðgætin á hvern hátt öll vörumst mein.

Sýn okkur sannleik þú svo okkar vaxi trú,

reynast mun raungóð nú ráðvendni hrein.

3. Okkar skyn auki þú á ríki þínu nú,

dýrleg gjöf, Drottinn, sú dásamleg er.

Sendu burt syndaþrá svo enginn hverfi frá,

andvörpum eyra ljá án afláts hér.

4. Ætíð veit okkur lið, óttalaus þér við hlið

fagnandi flytjum við frjáls nafn þitt nú.

Mikinn frið munum sjá, megum við lof þér fá,

um heiminn allan þá öðlast frægð þú.