Vígðir Jehóva
Söngur 196
Vígðir Jehóva
1. Til er þjóð sem þjónar nú
þakklát Guði, vígð í trú.
Lifir eftir lögum hans,
laðar menn til skaparans.
2. Múgur birtist mikill hér,
mjög kær Drottins hirði er.
Vígsluheitin heldur hann,
hirðir Guðs því sauðum ann.
3. Einatt boða orðið traust
einlægir með djarfri raust.
Lið þeir veita leifahjörð,
líkjast dögg á frjórri jörð.
4. Lítil hjörð og sauðasveit
sýna tákn um guðleg heit.
Jákvæð starfi Jesú í,
Jehóva gleðst yfir því.