Vöxtur guðveldisins
Söngur 53
Vöxtur guðveldisins
1. Heill sé Guðs veldi er stöðugt nú stækkar,
stórkostleg framför er augljós í því.
Lofsöngur Jehóva háleitur hækkar
hjá þeim sem ljósi hans ganga nú í.
Sannlega grundvöllinn setti hér fríðan,
sjálfan sig auðmýkti lausnarinn þá.
Múgur nú lærir með leifunum síðan
lofsöng til sonarins föðurnum hjá.
2. Kristur í hásæti dæmir og drottnar,
dregur hann þjóðir og lýði að sér.
Andspyrnan gegn Drottins alvaldi brotnar,
óvini sigrar hann brátt hvar sem er.
Eilífðarfaðir með frelsi og gleði,
friðarins höfðingi, guðhetja er.
Vandlæting Jehóva voldug því réði,
veldið og friðurinn aukningu sér.
3. Guðlega náðin er gjöf sem við höfum,
gleðifrétt mikil er aukningin sú.
Hamingju ykkar þið aukið með gjöfum,
innið af hendi Guðs þjónustu nú.
Öllum, sem hæðast, hans aðvörun berið
um Harmagedón og glötunarleið.
Kostgæfir boðendur björgunar verið,
boðskapinn flytjið til manna í neyð.