Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Varpa áhyggjum þínum á Jehóva

Varpa áhyggjum þínum á Jehóva

Söngur 103

Varpa áhyggjum þínum á Jehóva

(Sálmur 55:23)

1. Jehóva, heyr einlægt ákall,

aldrei hyldu skýi þig.

Ljá mér eyra, lífsins faðir,

lát ei kvíða þjaka mig.

(Viðlag)

2. „Ætti’ ég vængi eins og dúfa,“

eitt sinn Davíð Guð sinn bað,

„undan skelfing illvirkjanna

æfði’ ég flug á hvíldarstað.“

(Viðlag)

3. Hrærður vil ég hrópa til þín,

hæsta valdið einn þú átt.

Frið þú veitir, frelsar hrjáða,

færir endurlausn og sátt.

(VIÐLAG)

Varpa burtu viðjum þínum,

veist að Jah Guð elskar þig.

Aldrei lætur ástvin skjögra,

eflir þig á lífsins stig.