„Verið heilagir“
Söngur 54
„Verið heilagir“
1. ‚Heilagir verið,‘ svo hefur Guð boðið,
hreinsun við öðluðumst fyrir Krists blóð.
Auðmjúkir hafa andans veg troðið,
auðkenna þannig má Guðs helgu þjóð.
2. Jehóva á okkur, eign hans við erum,
andlegur lýður og sauðirnir hér.
Í allri breytni ávallt við gerum,
okkur það ljóst að hans lög halda ber.
3. Sækjum við fram, ber það sönn þroska merki,
sjálfur Guð fágar hið trúaða lið.
Sannleikans áhrif sjá má í verki,
söknum ei heimsins og lítum ei við.
4. Færi hvert nýtum, af fúsleika leitum
fræðslu svo göngum við ljósinu í.
Jehóva ljúfa lotningu veitum,
lofsyngjum heilagan skaparann því.