Verið staðföst og óbifanleg!
Söngur 10
Verið staðföst og óbifanleg!
1. Bráðum að dómsdegi dregur á jörð,
duglega starfi því Guðs trúa hjörð.
Viljinn skal heill, sýnum hugdjarfa trú,
hollustu, staðfestu nú.
(Viðlag)
2. Heimur er falskur, af freistingum nóg,
frekar þarf hugurinn sannleikann þó.
Ef við svo Guðs vegi göngum rétt á,
gæfu og líf munum fá.
(Viðlag)
3. Þjónum í stöðugum styrk, sýnum dyggð,
stundum í sannleika einlæga tryggð.
Vörumst að sjón okkar förlist um síð.
Senn lýkur endisins tíð.
(VIÐLAG)
Staðföst því stöndum við nú, sterk byggjum upp okkar trú.
Orði Guðs nærumst á, ráðvendni sönnum bljúg.