Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Við þökkum þér, Jehóva

Við þökkum þér, Jehóva

Söngur 212

Við þökkum þér, Jehóva

(1. Þessaloníkubréf 5:18)

1. Við þökkum nú, Jehóva, þitt ljós og náð,

við þiggjum þinn sannleik, þín góðu ráð.

Þá blessun að mega í bæn leita þín

og bera fram málefni okkar brýn.

2. Við þökkum þér, Guð, að þú gafst soninn þinn

sem gegn hel og dauða vann sigurinn.

Við þökkum þér vissu um vilja þinn nú

svo við getum efnt okkar heit í trú.

3. Við þökkum þér, Jehóva, bræðralag best

sem birtist í vináttu sem glöggt sést.

Við þökkum þá elsku er auðsýnir þú,

þinn anda sem leiðbeinir okkur nú.

4. Við þökkum, ó, Guð, að þú gafst heiður þann

að göfga þitt nafn, kynna sannleikann.

Við þökkum að bráðum þú afmáir illt

og eilífa blessun þú senda vilt.