Við erum Guði vígð!
Söngur 202
Við erum Guði vígð!
1. Guð dró okkur til Krists Jesú, gjöf er það góð,
svo götuna lýsi sannleiksglóð.
Frá himni hefur tært
ljós hans hér skinið skært,
trú okkar allra nært,
að afneita sér gerir fært.
Og vígsluheit Jehóva við veittum í trú
svo við getum glaðst í Drottni nú.
2. En fræðslu og þjálfun verða þeir fyrst að fá
svo þjónustuumboð veita má.
Þá ríkissöng í sátt
þeir syngja allir hátt.
Þeir traustir taka þátt
að tigna nafn Drottins og mátt.
Þeir vígsluheit hafa sýnt með vatnsskírn í trú
og vinna á akri Drottins nú.
3. Guð, heyrðu bæn okkar því að vígð erum við
og veit þína náð og innri frið.
Þeir sanna gleði sjá
er sannleiksorðið þrá
og nafnið nota þá
og náð eiga Jehóva hjá.
Við sem erum helguð Guði höfum hans ráð
í hávegum, sannleiksorðin dáð.