Við verðum að hafa trú
Söngur 144
Við verðum að hafa trú
1. Í mörg skipti Jehóva mælti á jörð
er menn Guðs þá stóðu um boðskapinn vörð.
Hann mælti og loks fyrir munn sonar síns,
nú mundu hans orð vegna hjálpræðis þíns.
(Viðlag)
2. Þá vörpum ei burt okkar djörfung í dag
því dirfska við boðun er okkur í hag.
Því við í Krists fótspor ef fetum af trú,
mun fögur laun Jehóva veita’ okkur nú.
(Viðlag)
3. Við erum ei glötunar undanskotsmenn
en ávallt fólk trúar sem Guð notar enn.
Er óvinur margur á móti’ okkur rís
þá munum við treysta á Jehóva vís.
(VIÐLAG)
Höfum trú sem Biblían tendrar alla tíð,
byggjum trúna upp svo við lifum af Guðs stríð.
Eigum við þá trú sem ásamt verkum nú
mun okkur veita frelsun Guðs um síð?