Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Þjónaðu Jehóva, ekki Satan

Þjónaðu Jehóva, ekki Satan

Öll getum við valið. Annaðhvort þjónum við Jehóva eða Satan og djöflum hans. Við getum ekki gert hvort tveggja. Sannarlega er viturlegt að þjóna Jehóva!

Jehóva er góður

Eins og við höfum séð hafa djöflarnir ánægju af að meiða og blekkja fólk. Jehóva er ekki þannig. Hann elskar mannkynið eins og faðir börn sín. „Sérhver góð gjöf og sérhver fullkomin gáfa“ kemur frá honum. (Jakobsbréfið 1:17) Hann synjar mönnum ekki um neitt sem gott er, jafnvel þótt það kosti hann mikið. — Efesusbréfið 2:4-7.

Jesús, sonur Guðs, sýndi mönnum kærleika með því að lækna þá af meinum þeirra.

Hugsaðu um það sem Jesús, sonur Guðs, gerði á jörðinni. Hann gaf mállausum málið og blindum sýn. Hann læknaði holdsveika og lamaða. Hann rak út illa anda og læknaði alls kyns sjúkdóma. Með krafti Guðs reisti Jesús jafnvel látna upp til lífs á ný. — Matteus 9:32-35; 15:30, 31; Lúkas 7:11-15.

Guð leiðir okkur ekki afvega með lygum heldur segir alltaf satt. Hann blekkir aldrei neinn. — 4. Mósebók 23:19.

Forðastu óhreinar iðkanir

Hjátrú og blekkingar halda milljónum manna í fjötrum líkt og flugum í kóngulóarvef. Menn óttast hina dánu. Þeir óttast djöflana. Þeir hafa áhyggjur af bölvunum, fyrirboðum, töfrum og átrúnaðargripum. Þeir eru í böndum trúarhugmynda og siðvenja sem byggðar eru á lygum Satans djöfulsins. Þjónar Guðs eru ekki í neinum slíkum fjötrum.

Jehóva er langtum voldugri en Satan. Ef þú þjónar Jehóva mun hann vernda þig gegn djöflunum. (Jakobsbréfið 4:7) Særingar munu ekki verka á þig. Til dæmis höfðu þrír voldugir töfralæknar í Nígeríu í frammi særingar sem áttu að valda dauða votts Jehóva sem neitaði að fara úr bænum. Þegar særingarnar mistókust varð einn töfralæknanna óttasleginn, fór til vottsins og sárbændi um miskunn.

Efesusmenn brenndu bækur sínar um kukl og töfra.

Ef djöflarnir hrella þig getur þú ákallað Jehóva með nafni og hann mun vernda þig. (Orðskviðirnir 18:10) En til þess að þú njótir verndar Guðs þarft þú að slíta þig algerlega lausan frá öllu sem tengist spíritisma og djöfladýrkun. Tilbiðjendur Guðs í Efesus til forna gerðu það. Þeir söfnuðu saman öllum bókum sínum um kukl og brenndu þær. (Postulasagan 19:19, 20) Þjónar Guðs nú á tímum verða að fara eins að. Losaðu þig við töfragripi, verndargripi, átrúnaðargripi, bækur um kukl og dulspeki, og allt annað sem tengt er iðkun spíritisma.

Ástundaðu sanna guðsdýrkun

Ef þú vilt þóknast Guði er ekki nóg aðeins að snúa baki við falskri tilbeiðslu og hætta að gera það sem illt er. Þú verður að ástunda sanna tilbeiðslu. Biblían sýnir hvers krafist er:

Sæktu kristnar samkomur. — Hebreabréfið 10:24, 25.

Kynntu þér Biblíuna rækilega. — Jóhannes 17:3.

Prédikaðu fyrir öðrum. — Matteus 24:14.

Biddu til Jehóva. — Filippíbréfið 4:6, 7.

Láttu skírast. — Postulasagan 2:41.

Hafðu félagsskap við votta Jehóva

Satan og djöflarnir hafa þjóna á jörðinni sem kenna og iðka það sem rangt er. En Jehóva hefur líka þjóna. Það eru vottar Jehóva. (Jesaja 43:10) Um heim allan eru tæplega átta milljónir votta. Allir leitast þeir af krafti við að gera gott og kenna fólki sannleikann. Í flestum löndum er hægt að finna þá í Ríkissalnum þar sem þeir munu bjóða þig innilega velkominn.

Starf þeirra er unnið til að hjálpa öðrum að þjóna Guði. Þeir nema gjarnan Biblíuna með þér á heimili þínu, hjálpa þér að læra hvernig á að tilbiðja Jehóva á réttan hátt. Þú þarft ekki að borga fyrir það. Vottunum er það ánægja að kenna sannleikann af því að þeir elska fólk og þeir elska Jehóva Guð.

Vottar Jehóva munu hjálpa þér að þjóna Guði.