7. HLUTI
Frá upprisu Jesú til fangelsunar Páls
Á þriðja degi eftir dauða sinn var Jesús reistur upp. Þann dag birtist hann fylgjendum sínum fimm sinnum. Í 40 daga hélt Jesús áfram að birtast þeim. Þá steig hann upp til himna að nokkrum lærisveinum ásjáandi. Tíu dögum seinna úthellti Guð heilögum anda yfir fylgjendur Jesú sem biðu í Jerúsalem.
Nokkru síðar létu óvinir Guðs varpa postulunum í fangelsi en engill hleypti þeim út. Mótstöðumennirnir grýttu lærisveininn Stefán til bana. En við lærum hvernig Jesús valdi einn af þessum mótstöðumönnum sem sérstakan þjón sinn og hann varð Páll postuli. Þremur og hálfu ári eftir dauða Jesú sendi Guð Pétur postula til að prédika fyrir Kornelíusi, sem ekki var Gyðingur, og heimilisfólki hans.
Um það bil 13 árum síðar fór Páll í sína fyrstu trúboðsferð. Í annarri ferð Páls slóst Tímóteus í för með honum. Við lesum um marga spennandi atburði sem Páll og ferðafélagar hans upplifðu í þjónustu sinni við Guð. Að lokum var Páll settur í fangelsi í Róm. Tveim árum síðar var honum sleppt en svo var honum aftur varpað í fangelsi og síðan líflátinn. Atburðirnir í 7. HLUTA gerðust á um það bil 32 árum.
Í ÞESSUM HLUTA
KAFLI 102
Jesús er lifandi
KAFLI 103
Gegnum læstar dyr
KAFLI 104
Jesús fer aftur til himna
KAFLI 105
Biðin í Jerúsalem
KAFLI 106
Leystir úr fangelsi
KAFLI 107
Stefán grýttur
KAFLI 108
Á veginum til Damaskus
KAFLI 109
Pétur heimsækir Kornelíus
KAFLI 110
Tímóteus – nýr aðstoðarmaður Páls
KAFLI 111
Drengur sem sofnaði
KAFLI 112
Skipreka á eyju
KAFLI 113