1. Hver er Guð?
1 HVER ER GUÐ?
„Þú hefur skapað alla hluti.“ – Opinberunarbókin 4:11.
Hvað kennir Biblían okkur um Guð?
-
Hann er alvaldur, máttugasta persónan í alheiminum.
-
Hann hefur alltaf verið til.
-
Guð er faðir okkar.
Hann vill að líf okkar sé eins gott og mögulegt er.
-
Guð vill vera náinn okkur.
2 GUÐ HEFUR NAFN
,Ég birtist Abraham, Ísak og Jakobi sem almáttugur Guð en undir nafninu Jahve ...‘ – 2. Mósebók 6:3 (neðanmáls).
Hvers vegna er nafn Guðs mikilvægt?
-
Guð segir okkur að hann heiti Jahve eða Jehóva. Guð og Drottinn eru ekki nöfn heldur titlar eins og orðin konungur og forseti. Jehóva vill að við notum nafn sitt.
-
Nafn hans þýðir „Hann lætur verða“. Jehóva skapaði alla hluti og getur því staðið við öll loforð sín og látið vilja sinn ná fram að ganga.
3 JEHÓVA ELSKAR OKKUR
„Guð er kærleikur.“ – 1. Jóhannesarbréf 4:8.
Hvað merkir kærleikur Guðs fyrir okkur?
-
Hann er miskunnsamur og samúðarfullur. Honum er mjög annt um sannleika og réttlæti.
-
Hann er fús til að fyrirgefa.
-
Hann er þolinmóður við okkur.
-
Hann sýnir okkur tryggð.
4 GUÐ BER UMHYGGJU FYRIR ÞÉR
„Varpið allri áhyggju ykkar á hann því að hann ber umhyggju fyrir ykkur.“ – 1. Pétursbréf 5:7.
Hvernig veistu að Guð ber umhyggju fyrir þér?
-
Hann lofar að binda enda á þjáningar og bæta allan þann skaða sem vont fólk hefur valdið.
-
Jehóva vill að þú sért náinn honum.
-
Því betur sem þú kynnist Guði því vænna þykir þér um hann.