18. Ætti ég að vígja Guði líf mitt og láta skírast?
1 ÆTTI ÉG AÐ LÁTA SKÍRAST?
„Hér er vatn, hvað hamlar mér að skírast?“ – Postulasagan 8:36.
Hvers vegna og hvernig ættirðu að láta skírast?
Skírn sýnir að þú hefur sagt skilið við fyrra líf og byrjað nýtt sem felst í að gera vilja Guðs.
-
Til að þjóna Jehóva þarftu að láta skírast.
-
Skírn sýnir öðrum að þú viljir þjóna Guði.
-
Þú þarft að fara alveg á kaf í vatn eins og Jesús.
2 JEHÓVA ÆTLAST ALDREI TIL OF MIKILS AF ÞÉR
„Elskan til Guðs birtist í að við höldum boðorð hans. Og boðorð hans eru ekki þung.“ – 1. Jóhannesarbréf 5:3.
Af hverju þarftu ekki að vera hræddur við að vígjast Jehóva?
-
Þú þarft ekki að vera fullkominn til að vígja þig Jehóva. Hann hjálpar þér að gera það sem er rétt.
-
Kærleikur þinn til Jehóva hjálpar þér að sigrast á óttanum við að valda honum vonbrigðum.
3 SKREF Í ÁTT TIL SKÍRNAR
„Að gera vilja þinn, Guð minn, er mér yndi og lögmál þitt er innra með mér.“ – Sálmur 40:9.
Hvað þarftu að gera til að vígjast Jehóva?
-
STUNDAÐU BIBLÍUNÁM
Kynnstu Jehóva og Jesú Kristi. Því betur sem þú þekkir þá þeim mun kærari verða þeir þér.
-
BYGGÐU UPP TRÚ ÞÍNA
Treystu loforðum Guðs og að lausnarfórn Jesú geti bjargað okkur frá synd og dauða.
-
SÝNDU IÐRUN
Þetta merkir að sjá innilega eftir því ranga sem þú hefur gert.
SNÚÐU TIL GUÐS
Þetta merkir að hætta rangri breytni og gera það sem er rétt.
-
VÍGÐU GUÐI LÍF ÞITT
Þú vígir Jehóva líf þitt þegar þú lofar honum í bæn að tilbiðja hann og láta vilja hans vera það mikilvægasta í lífi þínu.