19. Haltu þig nálægt Jehóva
1 JEHÓVA ÞYKIR VÆNT UM ÞIG
„Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.“ – Jóhannes 3:16.
Hvernig sýnir Guð að honum þyki vænt um þig?
-
Jehóva er skjól okkar. Hann getur hjálpað okkur núna að leysa vandamál okkar.
-
Hann hefur gefið okkur frábæra framtíðarvon.
-
Guð ætlar að gefa okkur eilíft líf við fullkomnar aðstæður. Við munum njóta friðar, hamingju og fullkominnar heilsu í fallegri paradís.
2 JEHÓVA VILL AÐ ÞÚ ELSKIR HANN
„Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum.“ – Matteus 22:37.
Hvað fær kærleikur Guðs þig til að gera?
-
Sýndu þakklæti fyrir allt sem Guð hefur gert fyrir þig.
-
Sýndu að þú elskir Guð með því að gera vilja hans á hverjum degi.
-
Hlýddu boðum Guðs.
-
Leggðu þig fram við að gera öðrum gott.
3 VIÐHALTU STERKUM KÆRLEIKA TIL JEHÓVA
„Látið kærleika Guðs varðveita ykkur.“ – Júdasarbréfið 21.
Hvað getur hjálpað þér að halda þig nálægt Jehóva?
-
Vertu duglegur að biðja.
Matteus 28:19, 20; 2. Tímóteusarbréf 4:2
Gerðu allt sem þú getur til að segja öðrum frá Guðsríki.
-
Haltu áfram að læra um Jehóva.
-
Farðu reglulega á safnaðarsamkomur. Bræður þínir og systur hjálpa þér að nálægjast Jehóva enn betur.