2. Biblían – bók frá Guði
1 BIBLÍAN ER FRÁ GUÐI
„Sérhver ritning er innblásin af Guði.“ – 2. Tímóteusarbréf 3:16.
Að hvaða leyti er Biblían ólík öllum öðrum bókum?
Biblían hefur verið þýdd á um 2.600 tungumál og prentuð í milljörðum eintaka.
Í henni eru upplýsingar sem er hvergi annars staðar að finna.
-
Guð er höfundur Biblíunnar.
-
Guð lét menn færa sínar hugsanir í letur en með þeirra eigin orðalagi.
2 BIBLÍAN ER SPÁDÓMSBÓK
,Guð lýgur aldrei.‘ – Títusarbréfið 1:2.
Hvers vegna getum við treyst Biblíunni?
-
Biblían spáði fyrir hvernig Babýlon yrði sigruð um 200 árum áður en það gerðist.
-
Biblíuspádómar eru að rætast núna.
-
Við getum treyst því sem Biblían segir um framtíðina.
3 BIBLÍAN ER GERÐ TIL AÐ HJÁLPA ÞÉR
„Ég er Drottinn, Guð þinn, sem kenni þér það sem gagnlegt er.“ – Jesaja 48:17.
Hvað hefurðu lært um Biblíuna?
-
Biblían er nákvæm þegar hún minnist á vísindaleg mál.
-
Biblíuritararnir voru heiðarlegir.
-
Jesús kenndi fólki hvernig það gæti verið hamingjusamt og haft góð samskipti við aðra. Hann kenndi fólki líka að biðja til Guðs og að hafa rétt viðhorf til peninga.
4 BIBLÍAN GETUR BREYTT LÍFI ÞÍNU
„Orð Guðs er lifandi og kröftugt.“ – Hebreabréfið 4:12.
Hvað getur orð Guðs gert fyrir þig?
Það getur hjálpað þér að skilja hver vilji Guðs er.
Það getur hjálpað þér að skilja hvers konar persóna þú ert.
Það getur hjálpað þér að skilja hvers Guð væntir af þér.
Guð vill að þú lesir og nemir Biblíuna og að þér þyki vænt um hana.