Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

5. Lausnargjaldið – mesta gjöf Guðs

5. Lausnargjaldið – mesta gjöf Guðs

1 VIÐ ÞURFUM ÖLL Á LAUSNARGJALDINU AÐ HALDA

„Mannssonurinn er ... kominn til þess að ... gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir alla.“ – Matteus 20:28.

Hvers vegna þurfum við á lausnargjaldi að halda?

  • 1. Mósebók 3:17-19

    Þegar Adam óhlýðnaðist Jehóva glataði hann einstakri vináttu sinni við hann, fullkomnu lífi og heimili í paradís.

  • Rómverjabréfið 5:12

    Það sem Adam gerði varð til þess að við fengum synd og dauða í arf.

  • Efesusbréfið 1:7

    Jehóva notar lausnargjaldið til að losa mennina undan synd og dauða.

2 JEHÓVA ÚTVEGAÐI LAUSNARGJALDIÐ

„Guð hefur sent einkason sinn í heiminn til þess að hann skyldi veita okkur nýtt líf.“ – 1. Jóhannesarbréf 4:9.

Hvernig útvegaði Jehóva lausnargjaldið?

  • Sálmur 49:8, 9

    Ekkert okkar gæti nokkurn tíma greitt lausnargjald fyrir það fullkomna líf sem Adam glataði.

  • Lúkas 1:35

    Jehóva sendi ástkæran son sinn til jarðar til að fæðast sem fullkominn maður.

  • Rómverjabréfið 3:23, 24; Hebreabréfið 9:24

    Eftir að Jesús var reistur aftur upp til himna færði hann Jehóva andvirði fullkomins mannslífs síns sem lausnargjald.

3 LAUSNARGJALDIÐ VEITIR OKKUR TRAUSTA VON

„Hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera.“ – Opinberunarbókin 21:4.

Hvernig getum við notið góðs af lausnargjaldinu?

4 VIÐ ÞURFUM AÐ VIÐURKENNA LAUSNARGJALDIÐ

„Guð ... gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir ... hafi eilíft líf.“ – Jóhannes 3:16.

Hvernig getum við sýnt þakklæti okkar fyrir gjöf Guðs, lausnargjaldið?