Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

7. Dánir verða reistir upp

7. Dánir verða reistir upp

1 JEHÓVA ÆTLAR AÐ AFMÁ DAUÐANN

„Dauðinn er síðasti óvinurinn sem verður að engu gerður.“ – 1. Korintubréf 15:26.

Hvaða huggun veitir Biblían okkur þegar einhver deyr?

  • 2. Korintubréf 1:3, 4

    Þegar ættingi eða náinn vinur deyr, finnst okkur við oft lítils megnug. En Biblían veitir okkur huggun.

  • Jesaja 25:8; 26:19

    Jehóva hefur vald til að afmá dauðann að eilífu. Hann ætlar meira að segja að reisa látna upp til lífs á ný.

2 VIÐ GETUM TREYST ÞVÍ AÐ DÁNIR VERÐI REISTIR UPP

„Stúlka litla, ég segi þér, rís upp!“ – Markús 5:41.

Af hverju getum við treyst því að dánir verði reistir upp?

3 JEHÓVA MUN REISA MILJARÐA MANNA TIL LÍFS Á NÝ

„Þá hrópaðir þú og ég svaraði þér, þú mundir þrá verk handa þinna.“ – Jobsbók 14:13-15.

Hverjir verða reistir upp?

  • Jóhannes 5:28, 29

    Allir sem eru geymdir í minni Jehóva vakna til lífs á ný.

  • Postulasagan 24:15

    Bæði réttlátir og ranglátir verða reistir upp.

  • Jesaja 40:26

    Jehóva man hvað hver einasta stjarna heitir, þess vegna fer hann létt með að muna nákvæmlega eftir þeim sem hann reisir upp til lífs á ný.

4 SUMIR ERU REISTIR UPP TIL LÍFS Á HIMNUM

,Ég fer burt að búa yður stað?‘ – Jóhannes 14:2.

Hverjir verða reistir upp til lífs á himnum?

  • 1. Pétursbréf 3:18

    Jesús var fyrstur til að vera reistur upp til lífs á himnum.

  • Lúkas 12:32

    Jesús sagði að aðeins lítill hópur lærisveina hans myndi verða reistur upp til lífs á himnum.

  • Opinberunarbókin 14:1

    Jehóva hefur valið alls 144.000 til að lifa á himnum.