Upplýsingar fyrir mótsgesti
SÉRSTAKUR FUNDUR
SKÓLI FYRIR BOÐBERA GUÐSRÍKIS Brautryðjendum á aldrinum 23 til 65 ára, sem vilja færa út kvíarnar í þjónustunni, er boðið að sækja fund eftir hádegi á sunnudag fyrir þá sem hafa áhuga á að sækja Skólann fyrir boðbera Guðsríkis. Nánari upplýsingar um stað og stund verða veittar á mótinu.
UPPLÝSINGAR FYRIR MÓTSGESTI
UMSJÓN Salarverðir eru mótsgestum til aðstoðar. Fylgdu leiðbeiningum þeirra jafnt utan húss sem innan svo sem varðandi bílastæði, sæti og annað.
SKÍRN Sæti fyrir skírnþega verða tekin frá í fremstu sætaröð fyrir framan sviðið og þeir ættu að fá sér sæti þar áður en skírnarræðan hefst fyrir hádegi á laugardag. Skírnþegar ættu að hafa með sér handklæði og viðeigandi sundföt.
FRJÁLS FRAMLÖG Talsverðum fjármunum hefur verið varið til þess að við getum haft hentugt húsnæði, sæti, hljóðkerfi, myndbúnað og annað sem gerir dvölina á mótsstaðnum ánægjulega og hjálpar okkur að styrkja sambandið við Jehóva. Frjáls framlög mótsgesta eru notuð til að standa undir þessum kostnaði og til að styðja alþjóðastarfið. Auðvelt er að finna greinilega merkta bauka fyrir frjáls framlög á nokkrum stöðum í húsinu. Öll framlög eru mikils metin og hið stjórnandi ráð þakkar rausnarlegan stuðning við starfsemi Guðsríkis.
SKYNDIHJÁLP Höfum í huga að aðeins ætti að leita til þessarar deildar í NEYÐARTILFELLUM.
TAPAÐ FUNDIÐ Fara ætti með alla óskilamuni í deildina sem merkt er ,Tapað og fundið‘. Ef þú týnir einhverju skaltu leita þangað og þú færð aðstoð við að finna það. Ef börn verða viðskila við foreldra sína ætti að fara með þau í þessa deild. Til að forðast óþarfa áhyggjur og streitu eru foreldrar vinsamlegast beðnir um að líta eftir börnum sínum og hafa þau hjá sér.
SÆTI Sýndu öðrum tillitssemi. Mundu að aðeins má taka frá sæti fyrir nána ættingja, þá sem búa á sama heimili og þú, þá sem eru þér samferða til mótsstaðarins eða eru biblíunemendur þínir. Geymdu ekki dót í sætum sem eru ekki frátekin.
SJÁLFBOÐASTÖRF Hafðu samband við sjálfboða- og upplýsingadeildina ef þig langar til að taka þátt í sjálfboðastörfum á mótinu.
Skipulagt af stjórnandi ráði Votta Jehóva