Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

ÞJÁLFUNARLIÐUR 18

Fræðandi fyrir áheyrendur

Fræðandi fyrir áheyrendur

1. Korintubréf 9:19-23

YFIRLIT: Örvaðu hugsun áheyrenda þannig að þeim finnist þeir hafa lært eitthvað sem skiptir máli.

HVERNIG FER MAÐUR AÐ?

  • Hugleiddu hvað áheyrendur þínir vita um efnið. Hjálpaðu áheyrendum þínum að sjá efnið frá nýju sjónarhorni frekar en að endurtaka bara það sem þeir hafa heyrt áður.

  • Rannsakaðu og hugleiddu. Þegar mögulegt er skaltu nota minna þekktar staðreyndir eða atburði líðandi stundar til að útskýra aðalatriði. Hugleiddu efnið vandlega og tengdu það vel við þær staðreyndir sem þú ætlar þér að vísa til.

  • Sýndu fram á notagildi þess sem þú segir. Útskýrðu hvernig biblíuvers geta hjálpað áheyrendum þínum í daglegu lífi þeirra. Ræddu um sérstakar aðstæður, viðhorf og verk sem skipta áheyrendur þína máli.