ÞJÁLFUNARLIÐUR 2
Samtalsform
2. Korintubréf 2:17
YFIRLIT: Talaðu á eðlilegan og einlægan hátt sem endurspeglar viðhorf þitt til umræðuefnisins og áheyrenda þinna.
HVERNIG FER MAÐUR AÐ?
-
Undirbúðu þig vandlega og í bæn. Biddu Jehóva um hjálp til að einbeita þér að því sem þú ætlar að segja en ekki sjálfum þér. Hafðu meginatriðin sem þú ætlar að benda á skýrt í huga. Settu efnið fram með eigin orðum í stað þess að lesa upp orð fyrir orð.
-
Talaðu frá hjartanu. Veltu fyrir þér hvers vegna áheyrendur þínir þurfa að heyra boðskapinn. Einbeittu þér að áheyrendum. Þá mun líkamsstaða, látbragð og svipbrigði endurspegla einlægni og hlýju.
-
Horfðu á áheyrendur. Hafðu augnasamband ef það þykir viðeigandi. Horfðu á einn áheyranda í einu þegar þú flytur ræðu, í stað þess að horfa eða skima yfir allan hópinn.