Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

ÞJÁLFUNARLIÐUR 4

Biblíuvers vel kynnt

Biblíuvers vel kynnt

Matteus 22:41-45

YFIRLIT: Undirbúðu áheyrendur þína áður en þú lest biblíuvers.

HVERNIG FER MAÐUR AÐ?

  • Íhugaðu hvers vegna þú lest þetta biblíuvers. Kynntu hvert biblíuvers þannig að athygli áheyrenda beinist að því atriði sem þú villt leggja áherslu á í versinu.

  • Vísaðu í Biblíuna sem áreiðanlega heimild. Þegar þú talar við fólk sem trúir á Guð skaltu beina athygli þess að Biblíunni, orði Guðs, til að sýna að hún er uppspretta viskunnar.

  • Vektu áhuga á biblíuversinu. Þú getur borið fram spurningu sem er svarað í versinu, bent á vandamál sem ráðin í versinu hjálpa til við að leysa eða nefnt meginreglu sem kemur fram í versinu.