Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Niðurlag

Niðurlag

Hugsar þú öðru hvoru til baka um góðar stundir sem þú áttir með söfnuði Jehóva? Rifjast upp fyrir þér uppörvandi samkoma, hvetjandi mót, ánægjulegt atvik í boðunarstarfinu eða bara skemmtilegar samræður við trúsystkini? Þú hefur ekki gleymt Jehóva og hann hefur ekki heldur gleymt þér. Hann hugsar með hlýju til þess sem þú gerðir áður í þjónustu hans. Og hann þráir að hjálpa þér að snúa aftur til sín.

Jehóva segir: „Nú ætla ég sjálfur að leita sauða minna og líta eftir þeim. Eins og hirðir lítur eftir hjörð sinni þegar hún er á dreif í kringum hann mun ég fylgjast með mínu fé. Ég mun bjarga sauðum mínum frá öllum þeim stöðum sem þeir dreifðust til.“ – Esekíel 34:11, 12.