Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

16HLUTI

Hvert er hlutverk safnaðarþjóna?

Hvert er hlutverk safnaðarþjóna?

Mjanmar

Verkefni á samkomu

Starfshópur

Þrif og viðhald ríkissalar

Í Biblíunni er talað um tvo hópa kristinna karlmanna sem gegna ábyrgðarstörfum í söfnuðinum. Þetta eru umsjónarmenn og safnaðarþjónar. (Filippíbréfið 1:1) Yfirleitt eru nokkrir bræður útnefndir til þessara starfa í hverjum söfnuði. Hvaða störf vinna safnaðarþjónar í okkar þágu?

Þeir aðstoða öldungaráðið. Safnaðarþjónar eru andlega sinnaðir, samviskusamir og áreiðanlegir bræður á öllum aldri. Þeir annast ýmis mikilvæg störf tengd söfnuðinum og ríkissalnum. Fyrir vikið geta öldungarnir einbeitt sér betur að kennslunni og hjarðgæslunni.

Þeir annast ýmis mikilvæg störf. Oft er safnaðarþjónum falið að bjóða gesti velkomna í ríkissalinn. Þeir sjá um hljóðkerfið, annast dreifingu rita til safnaðarmanna, sjá um bókhald og úthluta starfssvæðum. Þeir aðstoða einnig við þrif og viðhald ríkissalarins. Öldungarnir biðja þá ef til vill að aðstoða aldraða í söfnuðinum. Þeir vinna fúslega hver þau störf sem þeim eru falin og ávinna sér virðingu safnaðarins fyrir. – 1. Tímóteusarbréf 3:13.

Þeir eru öðrum góð fyrirmynd. Bræður, sem uppfylla hæfniskröfurnar, eru útnefndir safnaðarþjónar. Þeir styrkja trú okkar þegar þeir sjá um dagskrárliði á samkomum. Þeir hvetja okkur til dáða með því að vera drífandi í boðunarstarfinu. Þeir stuðla að gleði og einingu safnaðarins með því að starfa náið með öldungunum. (Efesusbréfið 4:16) Með tíð og tíma geta þeir orðið hæfir til að þjóna sem öldungar..

  • Hvað einkennir safnaðarþjóna?

  • Hvernig stuðla safnaðarþjónar að því að allt gangi vel fyrir sig í söfnuðinum?